21. júlí 2011 |
Byggðarhátíðin Tálknafjör á Tálknafirði um helgina
Bæjarhátíðin á Tálknafirði nefnist Tálknafjör og stendur yfir núna um helgina. Hún byrjar á föstudagskvöldi með fjölskylduvænum ratleik en síðan er gönguferð með leiðsögn sem endar á brennu og bollasúpu. Laugardagurinn verður þéttskipaður viðburðum en hátíðinni lýkur með poppmessu á sunnudag.
Dagskrá Tálknafjörs (pdf) má finna hér á Tálknafjarðarvefnum.