Byggingaráform við Hólatröð
Fyrir 10 árum var parhúsið við Hólatröð 1 - 3 á Reykhólum byggt í samstarfi verktaka og hreppsins.
Nú hefur sveitarstjórn hug á að endurtaka leikinn og ráðast í byggingu við Hólatröð 5 – 7.
Á fundi skipulags- bygginga- húsnæðis- og hafnarnefndar þann 9. júlí lagði hún fram þessa tillögu:
„8. 1807012 - Húsnæðismál á Reykhólum.
Nefndin leggur til að sveitarfélagið fari í framkvæmdir við byggingu parhúsa við Hólatröð 5 og 7. Skipulagsfulltrúa falið að kanna alútboð vegna framkvæmdarinnar. Samþykkt samhljóða.“
Afgreiðsla sveitarstjórnar á fundi 12. júlí, á tillögu bygginganefndar var eftirfarandi:
„5.5 1807012 - Húsnæðismál á Reykhólum.
Sveitarstjórn samþykkir tillögu nefndarinnar um byggingu sveitarfélagsins á parhúsum við Hólatröð 5 og 7. Samþykkt samhljóða.“
Sjá nánar í Fundargerðir hér neðst á síðunni.