Byggingarlóðir fyrir íbúðir á Reykhólum
Reykhólahreppur auglýsir til úthlutunar lóðir við Hellisbraut á Reykhólum.
Um er að ræða tvær 6 einbýlishúsalóðir og 2 fjögurra íbúða raðhúsalóðir sem allar eru á skilgreindu íbúðarsvæði við Hellisbraut á Reykhólum skv. gildandi aðalskipulagi Reykhólahrepps 2006-2018 en um lóðirnar gildir deiliskipulag fyrir byggingu íbúðarhúsnæði. Deiliskipulagið var birt í B-deild Stjórnartíðinda þann 15. maí 2015.
Lóðir til einstaklinga eru eftirfarandi:
- Hellisbraut 46, leigulóð, 899 m2 stærð.
- Hellisbraut 54, leigulóð, 953 m2 stærð.
- Hellisbraut 66, leigulóð. 955 m2 stærð.
- Hellisbraut 68, leigulóð. 955 m2 stærð.
- Hellisbraut 78, leigulóð. 955 m2 stærð.
Á lóðunum má byggja 95 – 190 m2 einbýlishús á einni hæð skv. skilmálum í deiliskipulagi.
Lóðir til lögaðila eru eftirfarandi:
- Hellisbraut 58 – 64, leigulóðir 475 – 674m2 stærð.
- Hellisbraut 70 – 76. , leigulóðir 475 – 674m2 stærð.
Á lóðunum má byggja fjögurra íbúða raðhúss á einni hæð, stærð íbúða 78 – 125 m2 skv skilmálum í deiliskipulagi.
Samkvæmt skilmálum Reykhólahrepps um lóðaúthlutanir skulu umsækjendur tilgreina með glöggum hætti byggingaráform sín og framkvæmdahraða og verður lagt mat á þarfir umsækjanda til lóðar við úthlutun. Til að umsókn teljist gild skulu umsækjendur greiða kr. 20.000 í staðfestingargjald og þá skulu þeir jafnframt leggja fram skriflega staðfestingu frá banka eða lánastofnun um greiðsluhæfi og/eða möguleika á lánafyrirgreiðslu vegna fyrirhugaðrar húsbyggingar. Skal í staðfestingunni koma fram að umsækjandi geti fjármagnað 100% kostnaðar fyrirhugaðrar húsbyggingar.
Deiliskipulag Hellisbrautar, úthlutunarskilmálar og umsóknareyðublað er aðgengilegt á vef sveitarfélagsins www.reykholar.is. Umsókn skal senda á Stjórnsýsluhús Reykhólahrepps, Maríutröð 5a, 380 Reykhólahreppi, eða á netfangið sveitarstjori@reykholar.is. Umsóknarfrestur er til og með 31. október 2021.
Hér eru tenglar á deiliskipulag, úthlutunarskilmála og umsókn um lóð.