16. nóvember 2016 | Umsjón
Dagatalið fyrir árið 2017
Kvenfélagið Katla er með til sölu dagatal fyrir árið 2017 með myndum sem heimafólk hefur tekið í Reykhólahreppi. Það kostar aðeins 2.000 krónur og tilvalið í jólagjöfina. Hægt er að kaupa það í Hólabúð á Reykhólum, hjá Erlu í Mýrartungu, Söndru Rún á Reykhólum og Málfríði á Hríshóli. Einnig verður það til sölu hjá Össu í Króksfjarðarnesi helgina 26.-27. nóvember.
Kvenfélagið Katla óskar öllum velfarnaðar og þakkar fyrir stuðninginn.