23. apríl 2013 | vefstjori@reykholar.is
Dagskrá Barmahlíðardagsins frágengin
Hátíðahöldin á Barmahlíðardaginn, sem haldinn er á Reykhólum á sumardaginn fyrsta ár hvert, verða með veglegra móti að þessu sinni. Ástæðan er 25 ára afmæli Hjúkrunar- og dvalarheimilisins Barmahlíðar, en fyrsta heimilisfólkið fluttist inn snemma árs 1988. Fyrir utan dagskrá og afmæliskaffi í Barmahlíð verður opið kaffihús í Reykhólaskóla ásamt bingóspili.
► Dagskráin í heild: Sumardagurinn fyrsti - Barmahlíðardagurinn
► 11.03.2013 Fyrsta heimilisfólkið fluttist inn fyrir réttum 25 árum
► 17.04.2013 Maskadagur og þrif í Barmahlíð fyrir 25 ára afmælið