Dagskrá Reykhóladaganna 2014 frágengin
Byggðarhátíðin árvissa Reykhóladagar verður að þessu sinni 24.-27. júlí. Þorkell Heiðarsson umsjónarmaður hátíðarinnar hefur lokið við að ganga frá dagskránni, sem hefst síðdegis á fimmtudegi og stendur fram á miðjan dag á sunnudag. Hér er of langt mál að gera dagskránni skil í einstökum atriðum heldur skal vísað í hana í heild (sjá tengil hér fyrir neðan). Þó má geta þess sem einna helst má kalla fréttnæmt: Hljómsveitin ástsæla Spaðar verður með miðnæturtónleika á Báta- og hlunnindasýningunni á Reykhólum á fimmtudagskvöldinu. Þetta er í fyrsta skipti sem Spaðar leika á meginlandi Reykhólahrepps, en þeir hafa alloft spilað í Flatey.
Skráningar á viðburði, skemmtanir og markað eru hjá Þorkeli umsjónarmanni. Til hans má einnig senda fyrirspurnir og athugasemdir tengdar hátíðinni. Síminn er 822 7808 og netfangið reykholadagar2014@gmail.com.
► Fylgist líka með á Facebooksíðu hátíðarinnar (Reykhóladagar).
Vinsamlega deilið þessu sem víðast!