Tenglar

20. maí 2008 |

Dagur barnsins á sunnudag – Gleði og samvera

Ákveðið var á fundi hreppsnefndar Reykhólahrepps í síðustu viku að hvetja foreldra í sveitarfélaginu til að gera eitthvað skemmtilegt með börnunum sínum á Degi barnsins, sem er á sunnudaginn. Ríkisstjórnin hefur ákveðið að ár hvert skuli haldinn hátíðlega Dagur barnsins og hefur síðasti sunnudagur maímánaðar verið valinn fyrir þennan viðburð. Hann verður nú haldinn hérlendis í fyrsta sinn sunnudaginn 25. maí.

„Markmiðið með því að helga börnum sérstaklega einn dag á ári er að skapa tækifæri til að minna okkur landsmenn alla á þessa mikilvægu þegna landsins, koma málefnum barna á framfæri og leyfa röddum barna að hljóma", segir Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra í bréfi til allra sveitarfélaga.

 

„Sameinuðu þjóðirnar hafa frá árinu 1954 helgað 20. nóvember alþjóðlegum degi barna. Ríkisstjórnin vill fylgja því góða fordæmi en ákvað að velja deginum stað á tíma birtu, vors og gróanda. Hugmyndin er sú að dagur barnsins renni inn í þjóðarvitundina á komandi árum og verði fyrst og fremst til þess fallinn að hvetja til samveru foreldra með börnum sínum. Með bréfi þessu vill félags- og tryggingaráðuneytið vekja athygli sveitarfélaga um allt land á þessum viðburði með ósk um að þau leggi sitt af mörkum til að gera þennan fyrsta dag barnsins að sannkölluðum hátíðardegi barna, foreldra og allra þeirra sem bera hag barna fyrir brjósti", segir einnig í bréfi félagsmálaráðherra.

 

Degi barnsins 25. maí hefur verið valin yfirskriftin Gleði og samvera. Ýmsir aðilar taka þátt í undirbúningi þess að halda Dag barnsins hátíðlega í fyrsta sinn í samvinnu við félags- og tryggingamálaráðuneytið og má þar nefna Umboðsmann barna og Biskupsstofu auk félaga og samtaka.

 

Sjá einnig: 

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31