Tenglar

5. febrúar 2009 |

Dagur leikskólans - opið hús á Hólabæ

Við Hólabæ á liðnu vori.
Við Hólabæ á liðnu vori.

Opið hús fyrir alla íbúa Reykhólahrepps verður á leikskólanum Hólabæ á Reykhólum á morgun, föstudaginn 6. febrúar. Börn og starfsfólk bjóða gestum að koma og skoða handaverkin sín og spjalla á meðan þegin er svolítil hressing. Hinn 6. febrúar ár hvert er haldið upp á Dag leikskólans um land allt til að vekja athygli á því starfi sem þar fer fram. Hver leikskóli hefur frjálsar hendur um hvað gert er hverju sinni af þessu tilefni.

 

Að undanförnu hefur mannskapurinn á Hólabæ verið að læra um Reykhóla með áherslu á jarðhita og annað sem er einkennandi fyrir staðinn. Börnin og starfsfólkið vona að þess sjáist merki á því sem eftir þau liggur þegar gestirnir koma í heimsókn.

 

Hólabær verður opinn gestum kl. 10-11.30 fyrir hádegi og kl. 13-16 eftir hádegi á Degi leikskólans á morgun.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31