13. október 2014 | vefstjori@reykholar.is
Daníel nýr formaður, Harpa áfram í stjórn
Daníel Jakobsson, hótelstjóri á Ísafirði og til skamms tíma bæjarstjóri í Ísafjarðarbæ, var kjörinn formaður Ferðamálasamtaka Vestfjarða á aðalfundi samtakanna á Ísafirði fyrir helgina. Hann segir að gott hljóð hafi verið í vestfirskum ferðaþjónum og vill að samtökin beiti sér enn frekar fyrir samstöðu meðal ferðaþjóna á Vestfjörðum.
Á fundinum voru fjórir nýir stjórnarmenn kosnir í stjórn samtakanna, þau Þorsteinn Másson í Bolungarvík, Þórdís Sif Sigurðardóttir á Ísafirði, Arinbjörn Bernharðsson á Norðurfirði á Ströndum og Einar Kristinn Jónsson á Patreksfirði. Harpa Eiríksdóttir á Stað í Reykhólasveit og Nancy Bechtloff á Ísafirði sitja áfram í stjórn.