21. mars 2014 | vefstjori@reykholar.is
Danskennsla og danssýning í Reykhólaskóla
Eins og undanfarin ár kemur Jón Pétur danskennari úr Dansskóla Jóns Péturs og Köru eftir helgina og kennir nemendum Reykhólaskóla dans fram eftir vikunni. Á vef skólans kemur fram, að vonast sé eftir 100% þátttöku. Danssýningin verður svo kl. 11 á fimmtudaginn.