Tenglar

22. júlí 2010 |

Deiliskipulagsbreyting auglýst

Hreppsnefnd Reykhólahrepps auglýsir breytingu á samþykktu deiliskipulagi á frístundabyggð í landi Fremri-Gufudals í Reykhólahreppi. Breytingin felur í sér fjölgun sumarhúsalóða úr fimm í sex auk lóðar fyrir íbúðarhús. Skipulagsuppdráttur ásamt greinargerð er til sýnis á skrifstofu Reykhólahrepps frá 22. júlí til 22. ágúst. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna. Athugasemdum skal skila til skipulags- og byggingafulltrúa Reykhólahrepps fyrir 7. september og skulu þær vera skriflegar.

 

Auglýsingin í heild

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31