Tenglar

12. febrúar 2015 |

Dísilbyssan á Reykhólum lekur

Dísilbyssan (áfyllingarhandfangið) á dælunni við verslunarhúsið á Reykhólum lekur. Svokallað stoppinnsigli er rofið, sennilega vegna kulda. Þó er hægt að dæla olíu en þá lekur meðfram þessu innsigli við handfang byssunar. Búið er að tilkynna Olíudreifingu um þetta og verður viðgerðamaður sendur, en ekki er víst að það verði í dag.

 

Rétt er að nota tækifærið og benda fólki á, að þegar snjófjúk og skafrenningur er eins og verið hefur þessa dagana þarf að passa að snjór sé ekki fyrir stútunum þegar reynt er að dæla. Í þeim er lítið gat sem getur stíflast af snjó og skynjari slær þess vegna út dælingu þegar hann fyllist.

 

Athugasemdir

Bergljót Bjarnadóttir, fimmtudagur 12 febrar kl: 16:00

Já það hlaut að vera ,ég dældi olíu á bílinn og var öll löðrandi í olíu á höndonum og fremst á ermonum á úlpunni minn , sem er líklega ónýt .Mjög svekkjandi.

Umsjónarmaður vefjarins, fstudagur 13 febrar kl: 11:12

Búið að gera við. Það var gert í morgun.

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31