6. febrúar 2012 |
Dóra frá Hafrafelli vill selja Skriðuland
Skriðuland í Saurbæ, verslun, íbúðarhús og gistihús, er til sölu og tilboða óskað. Ástæða þess að hér á vef Reykhólahrepps er birt frétt um eign til sölu í öðru sveitarfélagi er tvíþætt. Saurbærinn handan Gilsfjarðarins er nánasta grannsveit Reykhólahrepps. Seljandinn, Dórothea Sigvaldadóttir, er frá Hafrafelli í Reykhólasveit og margt af hennar nánasta fólki búsett á Reykhólum. Frétt þessi er því alls ekki fordæmisgefandi varðandi eignasölu á landinu almennt ...
Nánari upplýsingar og fjölda mynda er að finna hér.