Tenglar

29. júlí 2008 |

Draga sýningargesti í ferðalag ...

„Jón“ Magnúsar Pálssonar.
„Jón“ Magnúsar Pálssonar.

Núna um verslunarmannahelgina verður opnuð (ef svo má að orði komast) fremur sérstæð myndlistarsýning undir heitinu Dalir og Hólar. Hér eru á ferð átta myndlistarmenn með verk sín á nokkrum stöðum í Dalasýslu og Reykhólahreppi samtímis. Sýningarstaðirnir eru af ýmsum toga - húsarústir, eyðibýli, kaupfélag eða tiltekið svæði. Kveikjan að framtakinu er löngun til að sækja út fyrir hefðbundna sýningarsali, eða eins og segir í kynningu: „Sækja hugmyndir og vinna út frá náttúru og menningu landsins, efna til samstarfs við heimamenn og draga sýningargesti í ferðalag um þetta fallega svæði og leiða þá um sveitir Dalasýslu og Reykhólahrepps. Hver þátttakandi hefur valið sér sýningarstað eða svæði til þess að vinna með og flest er verkin unnin út frá staðháttum og sögu svæðisins."

 

Listamennirnir átta eru Eric Hattan, Hildigunnur Birgisdóttir, Hreinn Friðfinnsson, Kristinn G. Harðarson, Magnús Pálsson, Sigurður Guðjónsson, Sólveig Aðalsteinsdóttir og Þóra Sigurðardóttir. Sýningin hefst núna á laugardaginn 2. ágúst kl. 14 og stendur fram á sunnudag 10. ágúst. Aðgangur að verkunum er opinn allan tímann nema að þeim sem verða í Króksfjarðarnesi. Þar verður einungis opið helgarnar tvær (laugardag og sunnudag) frá klukkan 14 til 18. Bæklingur með korti af svæðinu og sýningarstöðum liggur frammi á bensínstöðvum og verslunarstöðum í Dölum og Reykhólahreppi.

 

Nánari upplýsingar um listafólkið og staðina og annað sem sýningunni viðkemur er að finna undir tenglinum Dalir og Hólar hér vinstra megin á síðunni. Myndin sem hér fylgir er af verki Magnúsar Pálssonar, sem nefnist Jón. Það er í túnbrekkunni ofan við Nýp á Skarðsströnd og gert til minningar um langafa listamannsins, séra Jón Bjarnason, sem þar bjó um skeið á síðari hluta 19. aldar.

 

Athugasemdir

magnea jens, rijudagur 29 jl kl: 17:17

Fallegar myndir,flott sýða.Ætla að fylgjast með arnarunganum.
takk fyrir magnea.

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31