Tenglar

10. september 2015 |

Dráttarvélameistarinn á Reykhóladögum 2015

Páll V. Magnússon.
Páll V. Magnússon.

Páll Vignir Magnússon sigraði í akstri dráttarvéla á Reykhóladögunum í sumar. Núna er hann búinn að vitja um verðlaunin og sendi vefnum þessa mynd af því tilefni. Verðlaunin eru þessi forláta jakki frá fyrirtækinu Vélfangi í Reykjavík sem hann klæðist á myndinni.

 

Páll kemur alltaf á Reykhóladaga og nýtur þeirra í ystu æsar. Hann er búsettur í Reykjavík en upprunninn í Miðfirði og raunar eru Reykhóladagarnir og dráttarvélabræðurnir landsfrægu á Grund einu tengsl hans við þetta hérað. En það er nóg til þess að hann kemur aftur og aftur og aftur hingað vestur.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31