Tenglar

6. október 2015 |

Draugasaga í Sævangi

1 af 2

Einleikurinn Draugasaga verður frumsýndur annað kvöld, miðvikudag, í félagsheimilinu Sævangi við Steingrímsfjörð á Ströndum. Leikfélag Hólmavíkur setur verkið upp í samvinnu við Sauðfjársetur á Ströndum. Leikritið Draugasaga er eftir Jón Jónsson á Kirkjubóli og var skrifað á síðasta ári. Það byggir á þjóðsögum af svæðinu, sígildri mannvonsku og margvíslegum myrkraverkum fyrri alda. Verkið er ekki við hæfi barna 12 ára og yngri.

 

Á frumsýningunni er mæting kl. 20 og þá verður súpa á boðstólum fyrir sýningu og svo kaffi á eftir. Aðgöngumiðinn kostar kr. 2.800 með veitingum. Sýningin sjálf er um klukkustund. Strandamenn og nærsveitungar eru hvattir til að fjölmenna á frumsýninguna, pöntunarsími er 693-3474 (Ester) og nóg af lausum sætum.

 

Jón Jónsson höfundur verksins leikstýrir Draugasögu, en Arnór Jónsson er leikarinn. Hemúllinn samdi hljóðmyndina, Ásta Þórisdóttir og Ester Sigfúsdóttir sjá um förðun og búninga og Jón Valur Jónsson um tæknimál ásamt Jóni.

 

Sú nýbreytni var í leikhúsinu að sérstök forsýning á stykkinu var núna á laugardag, en slíkt er ekki venja með leikrit. Þar mættu þjóðfræðinemar við HÍ sem voru í haustferð um Strandir. Sú prufusýning heppnaðist ljómandi vel. Þjóðfræðinemarnir eru í nemendafélaginu Þjóðbrók og gerðu víðreist um Strandir, gengu m.a. á fjöll og heilsuðu upp á tröllskessuna Þjóðbrók sem félagið heitir eftir og stendur í Þjóðbrókargili upp af Selárdal.

 

Næstu sýningar verða föstudaginn 9. október kl. 22 og fimmtudaginn 15. október kl. 20. Hugmyndin er svo að í vetur geti hópar sem eiga leið á Strandir í ýmsum erindagerðum pantað sér sýningu á Draugasögu í Sævangi og veitingar með eftir því sem áhugi er á.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Nvember 2024 »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30