Tenglar

11. ágúst 2016 |

Draugasaga í Sævangi og á Act alone

Einleikurinn Draugasaga sem Leikfélag Hólmavíkur setti upp síðasta haust verður fluttur einu sinni enn á Sauðfjársetrinu í Sævangi við Steingrímsfjörð núna á laugardagskvöld, 13. ágúst. Leikritið var sérstaklega skrifað fyrir sýningar í Sævangi. Sýningin að þessu sinni hefst kl. 22 og tekur klukkustund.

 

Áhorfendur kynnast húsdraugnum sem heldur til í Sævangi og hann segir sögur af öðrum draugum af Ströndum sem hann hefur orðið samferða gegnum tíðina. Hægt og sígandi kemur hans eigin ógæfusaga fram í skímuna. Leikritið er dálítið óhugnanlegt og ekki við hæfi ungra barna.

 

Þessi sýning á leikritinu kemur í framhaldi af því að stykkið verður sýnt á einleikjahátíðinni Act alone þetta árið, nánar tiltekið í kvöld, fimmtudagskvöldið 11. ágúst kl. 22 í félagsheimilinu á Suðureyri við Súgandafjörð.

 

Það er Arnór Jónsson frá Kirkjubóli á Ströndum sem leikur drauginn í einleiknum, en faðir hans, þjóðfræðingurinn Jón Jónsson á Kirkjubóli, er höfundur verksins og leikstjóri.

 

Miðapantanir fyrir sýninguna í Sævangi eru í síma 693-3474 (Ester) og aðgangseyrir 1.800 krónur.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31