8. apríl 2020 | Sveinn Ragnarsson
Dregið í afmælisleik Hólabúðar
Í dag var dregið í afmælisleik Hólabúðar. Þessi útdráttur fór fram í viðurvist vitna og undir vökulu auga myndavélar. Það var Ingibjörg Kristín Ingimarsdóttir sem dró nafn vinningshafans úr fötu með miðum frá fjölda þátttakenda.
Vinninginn hlaut Friðrún Gestsdóttir á Reykhólum. Útdráttinn má sjá á facebooksíðu Hólabúðar og einnig þegar Friðrún tók við vinningnum.