Tenglar

17. júní 2011 |

Dregur úr ferðum Íslendinga um landið

Hátt eldsneytisverð dregur úr ferðum Íslendinga innanlands. Umferð fyrstu helgina í júní var 14% minni en sömu helgi í fyrra. „Ferðaþjónustufyrirtæki kvíða því að ferðalög Íslendinga verði minni í ár“, segir Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar í samtali við Morgunblaðið. Þar kemur einnig fram, að innan ferðaþjónustunnar sé mikil óánægja með nýjan gistináttaskatt stjórnvalda. Skatturinn er sagður flókinn í framkvæmd og gististaðir ekki undirbúnir fyrir hann.

 

Því má bæta við, að í alveg nýrri álitsgerð Alþjóða gjaldeyrissjóðsins, sem síðustu árin hefur verið með fjármál íslenska ríkisins í gjörgæslu, kemur fram að sjóðurinn vill að skattar á eldsneyti verði hækkaðir.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31