Dún-heilsuskjól: Fékk hugmyndina eftir heilaskurð
Dóróthea Sigvaldadóttir frá Hafrafelli í Reykhólasveit (Dóra á Skriðulandi) verður með kynningu á heilsuskjólum úr íslenskum æðardún í borðsal Reykhólaskóla á sunnudag kl. 13-17. Þetta er hennar eigin hönnun og hugmyndina fékk hún við mjög sérstakar aðstæður. Hér er um að ræða dúnsjöl fyrir háls og herðar, dúnhlífar fyrir úlnliði og ökkla og innlegg í skó og sokka. Heilsuhlífar þessar eru úr venjulegu dúnheldu efni en líka úr silki og satíni, fylltar með íslenskum æðardún.
Dóra gekkst undir heilaskurðaðgerð á liðnu hausti. Á spítalanum tveimur dögum eftir aðgerðina fékk hún hugmyndina að heilsuskjólunum og hefur unnið við þau síðan og fengið einkaleyfi - „svo að þessu verði ekki stolið af mér“, segir hún. „Ég veit ekki til að svona sé framleitt nokkurs staðar í heiminum.“
Dóra segist ekkert mega vinna og þess vegna fáist hún bara við eitthvað létt.
Létt, segir hún.
Þá má ætla að æðardúnninn passi nokkuð vel.
Módelið á myndunum sem hér fylgja er systir Dóru, Marta Sigvaldadóttir á Stað í Steingrímsfirði.
Við birtingu þessarar fréttar er ekkert samráð haft um það við Dóru, að ekki sé ólíklegt að henni þætti gaman að fá upphringingu vegna þessa framtaks í síma 893 2928.
Gerður Sigurðardóttir, laugardagur 10 mars kl: 11:27
Sælt veri fólkið, hvað er verðið á þessari snildar flík (";)