26. nóvember 2009 |
Dýralæknirinn hreinsar hunda í næstu viku
Hjalti Viðarsson dýralæknir í Búðardal komst ekki í ferðina sem fyrirhuguð var í gær til að hreinsa hunda í Reykhólahreppi. Þess í stað hyggst hann verða á ferðinni bæði á þriðjudag og fimmtudag í næstu viku (1. og 3. desember). Hundaeigendur eru beðnir um að hafa samband við Hjalta í síma 434 1122 til að panta tíma. Einnig er hægt að bólusetja hunda gegn smáveirusótt og lifrarbólgu sé þess óskað.