31. janúar 2011 |
Dýranammi á súpufundi á Reykhólum
Hinn mánaðarlegi súpufundur í húsnæði Hlunnindasýningarinnar á Reykhólum verður á fimmtudag, 3. febrúar, og hefst kl. 18.30. Að þessu sinni kynnir Jón Árni Sigurðsson á Reykhólum fyrirtækið Gullstein, sem framleiðir hunda- og kattanammi, þaratöflur og fleira. Útflutningur er orðinn verulegur, einkum til Þýskalands.
Miðaverð kr. 800. Að venju annast Steinar í Álftalandi á Reykhólum súpugerðina. Nú verður sjávarréttasúpa framreidd.
P.s.: Vonandi misskilja lesendur ekki fyrirsögnina ...
Sólrún Ósk Gestsdóttir, rijudagur 01 febrar kl: 01:43
Til hamingju Jón Árni
Ef ég væri ekki búin að lofa mér þá renndi ég vestur í hundanammisúpu , hehheeh
Snillingur Jón og er svo áheit ? 1% af hagnaðinum rennur í sjóð til að halda úti 1 rúmi í Barmahlíð ?