1. júlí 2016 |
EM á Báta- og hlunnindasýningunni á Reykhólum
„Við stefnum að því að sýna EM-leikina hér á sýningunni annað kvöld (laugardag) og á sunnudag (Frakkland-Ísland) og síðan alla leikina sem eftir eru á mótinu,“ segir Harpa Eiríksdóttir á Báta- og hlunnindasýningunni á Reykhólum. „Við erum að púsla saman tæknilegum atriðum, svo endilega að fylgjast með á Facebook-síðu sýningarinnar, við látum vita ef eitthvað breytist.“
Á sunnudagskvöldið þegar Ísland spilar verður húsið opnað klukkan 18.30 og sjoppan verður opin. „Frítt inn og fólk má mæta með sinn bjór, en endilega skella smá klinki í safnbaukinn okkar. Á morgun er stefna á að sýna frá leiknum klukkan 19 (Þýskaland - Ítalía), húsið opnað eitthvað fyrir leik og barinn opinn og svo verður lifandi tónlist fram á nótt.“