Eftirgerð handrits frá Árna Magnússyni í Tjarnarlundi
Menningarviðburður verður í Tjarnarlundi í Saurbæ kl. 14 á morgun, sunnudag. Þar veita Dalamenn viðtöku eftirgerð eins af handritunum sem Árni Magnússon safnaði saman hérlendis og kom til varðveislu í Árnasafni í Kaupmannahöfn. Um er að ræða eftirgerð rímnahandrits frá Staðarhóli í Saurbæ þar sem félagsheimilið Tjarnarlundur er núna. Rósa Þorsteinsdóttir þjóðfræðingur mun segja frá handritinu og Steindór Andersen kveða rímur úr því.
Í ár eru 350 ár liðin frá því að Árni Magnússon fæddist á Kvennabrekku í Miðdölum (Kvennabrekku í Náhlíð eins og kallað var) og minnist Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum (Árnastofnun) þess með ýmsum hætti allt árið. Handritin alla leið heim er eitt af verkefnum Árnastofnunar á afmælisárinu.
Eftirgerðir sex handrita sem Árni hafði upp á hér og þar á sínum tíma verða sýndar á þessu ári á sex stöðum víða um land sem næst þeim stöðum þar sem Árni fékk þau. Fyrsta eftirgerðin verður fram borin eins og eðlilegt má telja í æskuhéraði Árna, Dalasýslu.
Kjartan Sveinsson tónlistarmaður hefur tekið að sér að „fóstra“ Staðarhólsbók rímna í tilefni 350 ára afmælis Árna Magnússonar. Árni fékk þessa þverhandarþykku skinnbók frá Staðarhóli 1707 en seinna var henni skipt í átta hefti. Á meðfylgjandi mynd er Kjartan á sínu fyrsta stefnumóti við rímnabókina en með honum er Rósa Þorsteinsdóttir þjóðfræðingur.
Þessi menningarviðburður er þáttur í Jörfagleði Dalamanna.
► Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum (Árnastofnun)
► Árni Magnússon handritasafnari, ævi og störf