Tenglar

3. júní 2013 | vefstjori@reykholar.is

Eigið fé Orkubús Vestfjarða vel á sjötta milljarð króna

Árið 2012 varð hagnaður af venjubundnum rekstri Orkubús Vestfjarða áttunda árið í röð. Framleiðsla vatnsaflsvirkjana Orkubúsins var sú mesta í sögu fyrirtækisins eða rúmar 90 GWh. Í aftakaveðri síðustu daga ársins urðu verulegar truflanir í flutnings- og dreifikerfi raforku og varð að skammta raforku til orkukaupenda um tíma.

 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kristjáni Haraldssyni orkubússtjóra, en aðalfundur Orkubúsins var haldinn á Ísafirði á föstudag. Einnig segir í tilkynningunni:

 

Samkvæmt rekstrarreikningi ársins 2012 varð hagnaður af venjubundnum rekstri fyrir skatta sem nam um 349,3 Mkr., en þegar tekið er tillit til tekjuskatts og er hagnaður ársins um 279,5 Mkr. Afskriftir námu alls 233,1 Mkr. Eignir Orkubús Vestfjarða ohf. í árslok 2012 voru alls 6.171 Mkr. og heildarskuldir alls 812 Mkr. Eigið fé nam því alls 5.359 Mkr. sem er um 88,8% af heildarfjármagni.

 

Á árinu 2012 var 413 Mkr. varið til fjárfestinga, þar af voru tengigjöld og vinna greidd af öðrum 29,9 Mkr. Allar fjárfestingar voru kostaðar af eigin fé fyrirtækisins eða greiddar af þeim sem þeirra óskuðu.

 

Að ósk eiganda Orkubús Vestfjarða var samþykkt á aðalfundi þess að af hagnaði ársins 2012 verði greiddur arður að fjárhæð 60 milljónir króna en afgangur hagnaðar verði lagður við höfuðstól og m.a. nýttur til að mæta miklum fyrirsjáanlegum kostnaði við endurnýjun og styrkingu rafdreifikerfisins.

 

Í stjórn Orkubús Vestfjarða ohf. voru kjörin:

  • Viðar Helgason, Reykjavík
  • Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir, Tálknafirði
  • Daníel Jakobsson, Ísafirði
  • Viktoría Rán Ólafsdóttir, Hólmavík
  • Árni Brynjólfsson, Önundarfirði

Nýkjörin stjórn kom síðan saman til fundar og skipti með sér verkum. Viðar Helgason var kjörinn formaður stjórnar, Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir kjörin varaformaður og Viktoría Rán Ólafsdóttir ritari.

 

Ársskýrsla Orkubús Vestfjarða fyrir árið 2012 (pdf)

 

Athugasemdir

Eyvindur, rijudagur 04 jn kl: 07:33

Frábært, og ég ætla sko að halda áfram að styrkja þá með kaupum á heitu vatni og rafmagni svo þeir skili hagnaði 2013 líka. Verðskrá hlýtur að hækka svo næsta vetur.

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31