Eitt verð ég að nefna til viðbótar ...
„Ég þakka kærlega fyrir skemmtilega samverustund á Reykhólum á fimmtudag og föstudag. Reyndar var ég svo heppin að „eiginlega verða veðurteppt“ og gat því notið sveitarinnar fram á sunnudag,“ segir Hrefna Hugosdóttir hjúkrunarfræðingur (frá Reykhólum og Miðjanesi) í léttu tilskrifi. Hún kom og var með námskeið í skyndihjálp á vegum Auðnast fyrir starfsfólk Reykhólahrepps og Þörungaverksmiðjunnar.
Bæði hreppurinn og verksmiðjan leggja áherslu á að slík námskeið fyrir starfsfólkið séu haldin með stuttu millibili og standa straum af þeim. Nærri fjörutíu manns sóttu námskeiðin að þessu sinni eða um fjórðungur íbúa Reykhólahrepps á aldrinum 20-67 ára. Flestir sækja námskeiðin aftur og aftur og því er þar líka um að ræða upprifjun og þjálfun í því sem áður hefur verið lært.
„Þátttakendur voru mjög áhugasamir og einstaklega skemmtilegir nemendur,“ segir Hrefna.
Auðnast leggur ríka áherslu á að skýr stefna sé varðandi heilsu og líðan starfsmanna fyrirtækja og stofnana. Þannig sé kunnátta í skyndihjálp mikilvægur liður í öryggis- og heilsustefnu þeirra.
„Eitt verð ég að nefna til viðbótar“, segir Hrefna. „Ég fór á föstudaginn í mat í skólanum og þar var allt á fullu eins og gengur í grunnskólum. Þó var ástæðan aðeins önnur en venjulega, þar voru veikindaforföll og börnin voru að þrífa skólann, allir á fullu og mikil stemming í hópnum. Frábær hugmynd að samvinnuverkefni, auk þess sem það er til þess fallið að efla ábyrgðarkennd fyrir umhverfi sínu.“