Tenglar

28. júní 2012 |

Eitthvað fyrir alla á áttundu Hamingjudögunum

Frá Hamingjudögum 2007 / Ester Júlía.
Frá Hamingjudögum 2007 / Ester Júlía.

Hamingjan svífur og sólin skín á Hólmavík þessa dagana, en þar eru Hamingjudagar nú haldnir í áttunda sinn. Hátíðin nær hámarki nú um helgina, en þá mætir m.a. töframaðurinn Ingó Geirdal með magnaða töfrasýningu, KK heldur ókeypis tónleika fyrir alla gesti hátíðarinnar, Leikhópurinn Lotta sýnir Stígvélaða köttinn, Hvanndalsbræður spila á stórdansleik í félagsheimilinu, Sauðfjársetur á Ströndum heldur sína árlegu Furðuleika og fjölmargar listsýningar verða.

 

Þá er einnig hægt að fara í go-kart, siglingar, Hamingjuhlaup og ýmislegt annað, svo fátt sé nefnt, að ógleymdum forsetakosningum, sem eru mikilvægur hluti af dagskránni. Heimamenn standa einnig sjálfir fyrir afskaplega fjölbreyttum og skemmtilegum atriðum.

 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hamingjudögum á Hólmavík.

 

Búist er við talsverðum fjölda fólks enda spáin fín og stemmningin góð. Ekki má síðan gleyma að minnast á Hnallþóruhlaðborð að kveldi laugardags, en þá bjóða íbúar í Strandabyggð öllum gestum Hamingjudaga ókeypis kræsingar í tertuformi.

 

Dagskrá hátíðarinnar má nálgast á vefnum www.hamingjudagar.is.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31