Tenglar

2. janúar 2013 |

Ekkert fjarskiptasamband á Klettshálsi

Fjórir staurar eru brotnir í raflínu Orkubús Vestfjarða um Gufudalsháls yfir í Kollafjörð. Þess vegna er ekkert fjarskiptasamband (Tetra-samband) á Klettshálsi. Ekki er vitað hvenær hægt verður að gera við línuna en til þess þarf væntanlega að flytja þangað öflug tæki. Engir bæir eru lengur í byggð í Kollafirði. Rafmagn frá landskerfinu komst síðdegis í gær í allar byggðir í Reykhólahreppi þegar lokið var viðgerð á línu Landsnets á Sælingsdalsheiði í Dalasýslu.

 

Þar með lauk dísilkeyrslu í varastöðinni á Reykhólum að sinni og reyndi því ekki til þrautar á olíubirgðirnar þar.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31