Tenglar

21. janúar 2013 |

Ekkert rökrétt svar

Hrefna Hugosdóttir.
Hrefna Hugosdóttir.

„Maður vaknar á morgnana og finnur ekkert rökrétt svar við því af hverju maður ætti að fara á fætur. Ekkert rökrétt svar við því af hverju maður ætti yfirleitt að standa upp, fara í föt og út úr húsi. Allt verður tilgangslaust því ekkert rökrétt svar finnst við tilgangi þessa dags eða lífsins í heild. Maður hugsar bara um hversu ómögulegur maður er, hversu mikil byrði og tímasóun maður er á fjölskyldunni og vinunum. Ég elska ekki sjálfan mig svo hvernig getur einhver annar elskað mig? Er þá ekki bara betra að slá tvær flugur í einu höggi og enda eigin þjáningar og gefa fjölskyldunni frí frá þér og þínu ómerkilega lífi?“

 

Ofanrituð klausa er úr grein eftir tvítuga stúlku, Silju Björk Björnsdóttur, sem hún birti fyrir helgina á bloggvef sem nefnist Freyjur. Fyrirsögnin er Þunglyndi er líka sjúkdómur. Hrefna Hugosdóttir hjúkrunarfræðingur syðra, sem á uppruna sinn á Reykhólum og í Reykhólasveit, hafði samband við Reykhólavefinn og mælti með því að hér yrði vakin athygli á grein Silju Bjarkar og hún einnig birt hér. Það er gert með góðfúslegu samþykki höfundar.

 

Auk þess lagði Hrefna til við umsjónarmann Reykhólavefjarins, að líka hann mælti með því að fólk kynni sér með opnum huga það sem í greininni kemur fram, og það gerir hann heils hugar. Hrefna segir og mælir þar fyrir munn beggja: 

  • Þunglyndi er alvarlegur sjúkdómur sem hefur mikil og oft alvarleg áhrif á einstaklinga, fjölskyldur, vinnustaði og samfélög. Okkur langar að deila þessu með ykkur, þar sem mikilvægt er að við gerum okkur grein fyrir þessum hlutum og skiljum þá í samhengi. Saga þessarar ungu konu er á sama veg og svo margra sem glíma við sjúkdóminn, en fæstir koma fram og segja sögu sína.
  • Fordómar eru yfirleitt vegna þess að við vitum ekki betur, höfum ekki verið upplýst um hlutina, höfum ekki haft áhuga á einhverju og þekkjum það ekki. Því er í raun hægt að segja að fordómar og vanþekking séu oft nátengd fyrirbæri. Okkur hættir til að dæma út í bláinn það sem við þekkjum ekki. Það kallast einmitt fordómar.
  • Þunglyndi fer ekki í manngreinarálit. Þetta er algengur sjúkdómur og því er gagnlegt fyrir almenning að þekkja einkenni sem geta verið lúmsk. Fyrir þá sem áhuga hafa skal bent á nánari upplýsingar hér á vef Geðhjálpar. Líka er upplýsingar um þessi mál að finna hér á vef Landlæknisembættisins.

 

Grein Silju Bjarkar er að finna undir Sjónarmið í valmyndinni vinstra megin og líka hér á sínum upphaflega stað (bloggvefurinn Freyjur).

 

Athugasemdir

Jóna Magga, mnudagur 21 janar kl: 14:13

Takk fyrir þetta Hrefna, því miður eru allt of margir enn haldnir fordómum gegn þessum sjúkdómi. Ég þekki þetta vel af eigin raun en er svo heppin að hafa náð að vinna mig út úr þessum erfiðu aðstæðum af langmestu :)

Inga Hrefna Jónsdóttir, mnudagur 21 janar kl: 19:57

Gott framtak að vekja athygli á þunglyndi. Ég hef verið svo heppin að vinna á Reykjalundi endurhæfingarmiðstöð SÍBS s.l. 12 ár en þar hefur verið í þróun sjálfshjálparbók við þunglyndi sem nú er komin á veraldarvefinn. Hvet fólk til að kynna sér efnið á www.ham.reykjalundur.is. Það geta verið margar orsakir fyrir þunglyndi en það eru líka til margar leiðir til að takast á við þunglyndi.
Kær kveðja
Inga Hrefna Jónsdóttir, forstöðusálfræðingur

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31