Tenglar

1. mars 2016 |

Ekki farast úr karlmennsku

Væri góður í Mottumars: Dieter Zetsche, forstjóri Mercedes-Benz og stjórnarformaður Daimler AG.
Væri góður í Mottumars: Dieter Zetsche, forstjóri Mercedes-Benz og stjórnarformaður Daimler AG.

Fulltrúar Krabbameinsfélagsins og Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, auk fulltrúa nokkurra félagasamtaka, Kiwanis, Lions, Rotary, Oddfellow og fleiri, fengu heimboð í varðskipið Þór á Faxaflóa í dag. Tilefnið var opnun Mottumars 2016 með afhendingu á björgunarboxi Krabbameinsfélagsins og Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi til áhafna skipa SFS og félaga í klúbbum sem eru að stærstum hluta karlmenn. Afhendingin fór fram í varðskipinu Þór og létu sigmenn Gæslunnar björgunarbox Mottumars síga niður í skipið.

 

Skilaboð Mottumars 2016 eru að hvetja karlmenn til að vera vakandi fyrir einkennum krabbameins í blöðruhálskirtli. Kjörorð herferðarinnar í ár eru: „Ekki farast úr karlmennsku. Lærðu að þekkja einkennin. Það er ekkert mál.“

 

Krabbameinsfélag Breiðfirðinga er meðal aðildarfélaga Krabbameinsfélags Íslands.

 

Meira hér á mbl.is

 

Mottumars

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31