24. maí 2017 | Sveinn Ragnarsson
Ekki nóg að segja „Svona gerir fólk ekki“ !!
Vegfaranda sem var á ferð frammi í Þorskafirði í morgun, brá heldur í brún þegar ekið var hjá áningarstaðnum við minnisvarðann um Matthías Jochumsson. Þar hafði stoppað fólk og við blasti ber botn þar sem losun var í gangi, og virtist eigandi hans ekki tiltakanlega feiminn.
Áðurnefndum vegfaranda var gjörsamlega nóg boðið, og vildi koma þessu á framfæri til þess að drifið yrði í að finna lausn á þessu hvimleiða máli.
Skilti eins og á meðfylgjandi mynd hafa verið sett upp á mörgum stöðum og er reynslan sú að þau eru virt. Hitt er svo annað mál, að þau eru varla nein staðarprýði, en skárri samt en hvítar veifur (með blettum).