Endurbygging vegar í Gufufirði boðin út
Vegagerðin hefur auglýst eftir tilboðum í endurbyggingu Vestfjarðavegar í Gufufirði. Um er að ræða kaflann frá slitlagsenda við Kraká og inn að Gufudalsá.
Mörg umferðaróhöpp hafa orðið á þessum kafla undanfarin ár, vegurinn er víða mjór og kantar ótryggir og brattir.
Vestfjarðavegur (60) Gufudalsá - Skálanes
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í endurbyggingu og breikkun Vestfjarðavegar (60-28) á um 6,6 km kafla frá Gufudalsá að Skálanesi.
Verkið skiptist í tvo kafla, annars vegar um 5,4 km langan kafla frá Gufudalsá að Melanesi. Sá kafli er ekki hluti af framtíðar Vestfjarðavegi en mun þjóna umferð um Gufudal þar til þverun Gufufjarðar og Djúpafjarðar verður framkvæmd. Hins vegar um 1,2 km langan kafla frá Melanesi að Skálanesi, en sá kafli er hluti af framtíðar Vestfjarðavegi.
Helstu magntölur eru:
- Fylling úr skeringum 41.700 m3
- Fláafleygar úr skeringum 27.000 m3
- Ræsalögn 500 m
- Styrktarlag 25.800 m3
- Burðarlag 10.200 m3
- Klæðing 44.200 m2
Verkinu skal að fullu lokið 15. júlí 2021.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 13. júlí 2020 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 11. ágúst 2020.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.