Endurgjaldslaust fjarnám í tónlist
Tilkynning frá sveitarstjórn og tónlistarskóla Reykhólahrepps.
Vegna aðstæðna sem uppi eru vegna covid-19 faraldursins hefur sveitarstjórn í samráði við skólastjóra og kennara tónlistarskóla Reykhólahrepps ákveðið að opna tónlistarskólann fyrir öllum íbúum sveitarfélagsins endurgjaldslaust.
Þeir sem þegar eru í tónlistarnámi halda áfram í fjarnámi en ekki verður greitt fyrir þessa önn (inneign flyst á næstu önn).
Kennt verður einu sinni í viku á dagvinnutíma í fjarnámi. Með þessu vonast sveitarstjórn til þess að lista og menningarlíf Reykhólahrepps gjaldi ekki fyrir þessar fordæmalausu aðstæður sem uppi eru í þjóðfélaginu. Við hvetjum fólk til að nýta sér þetta einstaka tækifæri og láta drauminn rætast um að læra á hljóðfæri.
Frekari upplýsingar og skráning er hjá Ingimari í síma 693 3929 eða á netfanginu: ingimar@reykholaskoli.is