Tenglar

12. desember 2018 | Sveinn Ragnarsson

Endurmenntun atvinnubílstjóra

Námskeið í endurmenntun atvinnubílstjóra með ökuréttindi í flokkum C1, C, D1 og D.

Atvinnubílstjórum í vöruflutningum og farþegaflutningum í atvinnuskyni er gert að sækja 35 kennslustunda endurmenntun á fimm ára fresti. Námskeiðin eru 5 talsins 7 kennslustundir hvert.

Þeir bílstjórar sem fengið hafa réttindi sín fyrir 10. september 2013 þurfa að ljúka endurmenntun fyrir 10. september 2018. Allir sem endurnýja ökuskírteini með þessum flokkum eftir þann tíma þurfa að hafa lokið endurmenntun.

Fræðslumiðstöð Vestfjarða  er með leyfi og viðurkenningu frá Samgöngustofu samkvæmt ákvæðum í reglugerð nr. 830/2011 um ökuskírteini.

 

Næstu námskeið hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða

 

Lög og reglur            14. des. 16:00-23:00                      Reykhólar

Umferðaröryggi        15. des. Kl 10:00-17:00                  Reykhólar

Vistakstur                16. des. Kl 10:00-17:00                  Reykhólar

 

 

 

Kennarar: Auður Ólafsdóttir, Skúli Berg

Verð hvert námskeið kr. 18.600 –

 

Upplýsingar og skráning í síma 456-5025 eða

http://www.frmst.is/

  

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31