Tenglar

12. nóvember 2009 |

Endurvakin Skrugga í kvennagreipum

Leikfélagið Skrugga í Reykhólahreppi var endurvakið núna í haust en félag með sama nafni starfaði í héraðinu á árum áður. Formaður hinnar nýju Skruggu er Sólveig Sigríður Magnúsdóttir, líklega betur þekkt sem Solla Magg. Með henni í stjórn eru Ingibjörg Þór og Björk Stefánsdóttir en varamenn eru sr. Elína Hrund Kristjánsdóttir og Andrea Björnsdóttir. Eins og ráða mætti af skipan stjórnar eru konur í miklum meirihluta í hinu nývakta leikfélagi. Á stofnfundinn komu fjórtán manns, þrettán konur og einn karl, en það var Gústaf Jökull Ólafsson, oddviti Reykhólahrepps. Síðan hafa fimm manns bæst í félagið, þar af tveir karlar, þannig að nú eru nítján manns í Skruggu.

 

Að sögn Sollu Magg hafa drög verið lögð að starfi félagsins á næstunni. Hinn 16. desember er ætlunin að vera með sérstakan dag fyrir börnin í húsnæði Hlunnindasýningarinnar á Reykhólum. Fyrirhugað er að trúbadorinn Hörður Torfason komi á næstunni og haldi tónleika. Áformaðar eru óvæntar uppákomur núna í nóvember og desember en ekki er gefið upp fyrirfram hvað þar verður á ferðinni. Eftir áramótin er síðan ætlunin að setja upp leiksýningu en ekki er búið að ákveða hvaða leikverk það verður.

 

Vel væri þegið að fá upplýsingar um Skruggu hina fyrri í athugasemdadálkinum hér fyrir neðan eða í netpósti.

 

Athugasemdir

Jóhanna Fríða Dalkvist, fstudagur 13 nvember kl: 08:36

Hæ hæ, flott að heyra þetta.
Mamma var í Skruggu hinni fyrri, þó ég muni ekkert mikið eftir sýningunum, ég man þó eftir einni þar sem að mig minnir Tóti í Hólum var kominn upp á skáp.
Mamma á myndir frá sýningum, svo hún gæti örugglega sagt ykkur eitthvað skemmtilegt :)

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31