4. júlí 2010 |
Enginn framboðslisti barst í Reykhólahreppi
Enginn framboðslisti til hreppsnefndarkjörs í Reykhólahreppi barst fyrir lok skilafrests á hádegi í gær, að sögn Halldórs D. Gunnarssonar, formanns kjörstjórnar. Samt er ekki öll nótt úti enn því að þegar enginn listi berst eða aðeins einn framlengist fresturinn um tvo sólarhringa eða til hádegis á morgun. Að sögn kunnugra verður þó að telja ósennilegt að listi berist úr þessu. Ef við það situr verða kosningarnar 24. júlí óbundnar persónukosningar eins og í kosningunum í lok maí sem úrskurðaðar voru ógildar.