Tenglar

14. júlí 2009 |

Engir bílar, engar hraðbrautir

Fuglar í Flatey. Mynd GG.
Fuglar í Flatey. Mynd GG.

„... Ingibjörg er meistari meistaranna í eldhúsinu og þeir réttir sem hún laðar fram eru hreint út sagt óviðjafnanlegir. Matseðilinn er sóttur í Breiðafjörðinn. Fiskisúpan er sú besta sem ég hef smakkað, er þó vel inni í þeim málum sakir dálætis á súpum og hef prófað þær víða auk þess að glíma við þær í eldhúsinu heima. Þorskurinn hennar, fiskibollurnar, léttreykti svartfuglinn, sjávarréttaþrennan og þannig mætti halda áfram. Allt þetta dregur mann inn í unaðsheima eldhúss sem er í heimsklassa.“

 

Þannig kemst Guðmundur Gunnarsson, formaður Rafiðnaðarsambands Íslands og Eyjubloggari, að orði í færslu á bloggi sínu í morgun. Pistill Guðmundar um ánægjulega heimsókn í Flatey í síðustu viku fer hér á eftir í heild. Á það skal jafnframt minnt, að Flatey eins og mestur hluti Breiðafjarðareyja er í Reykhólahreppi.


______________________________________

 

Hef verið á flakki undanfarið og haldið mig á Breiðafirðinum og á Vestfjörðum. Flatey hefur ákveðna sérstöðu í hugum margra. Flokkast undir ákveðna rómantík, seiðmagnað andrúmsloft sem hefur komið fram í myndum og bókum. Í sjálfu sér er það fábreytnin sem verður til þess að maður nýtur þess sem eyjan hefur upp á að bjóða. Rólegur göngutúr um eyjuna er góð afslöppun. Fuglalífið er fjölbreytt og fuglarnir eru óvenjulega spakir. Krían situr róleg á næsta girðingarstaur í nokkurra metra fjarlægð, en grípur til sinna aðgerða fari maður inn fyrir þar sem er hennar umráðasvæði.

 

Hvíldin felst í því að það er góður tími til þess að skríða jafnvel upp í aftur og lesa aðeins meira og fara svo aftur í stuttan göngutúr. Húsin í þorpinu hafa flest verið endurbyggð í sína upprunalegu mynd með myndarlegum hætti.

 

Ég hitti Guðmund Pál Ólafsson rithöfund, skólastjóra, kennara, náttúru- og heimildaljósmyndara, kvikmyndagerðarmann, smið, kafara, náttúruverndara og fyrirlesara. Hann sýndi okkur gamla kaupfélagshúsið þar sem hann býr nú hluta ársins. Hann hefur endurbyggt húsið af ótrúlegum hagleik. Þar stendur en gamla verzlunin með sínum flóknu og vönduðu innréttingum.

 

Breyting hefur orðið á ferðamenningu með tilkomu hótelsins. Þar er búið að endurbyggja þrjú hús á listilegan hátt. Fágað og vandað handbragð iðnaðarmanna blasir við hvar sem litið er. Ingibjörg Á. Pétursdóttir hótelstýra hefur stutt við það andrúmsloft sem er í húsunum með góðu vali á húsgögnum og munum.

 

En Ingibjörg er meistari meistaranna í eldhúsinu og þeir réttir sem hún laðar fram eru hreint út sagt óviðjafnanlegir. Matseðilinn er sóttur í Breiðafjörðinn. Fiskisúpan er sú besta sem ég hef smakkað, er þó vel inni í þeim málum sakir dálætis á súpum og hef prófað þær víða auk þess að glíma við þær í eldhúsinu heima. Þorskurinn hennar, fiskibollurnar, léttreykti svartfuglinn, sjávarréttaþrennan og þannig mætti halda áfram. Allt þetta dregur mann inn í unaðsheima eldhúss sem er í heimsklassa.

 

Enda það orðið eftirsótt að gista á hótelinu og það fullbókað á næstunni. Haustið með sínum stillum og myrkum kvöldum er seiðmögnun í Flatey. Skyndilega er allur fuglinn farinn yfir hafið til vetursetu í öðrum löndum og þögnin er mikil. Engir bílar, engar hraðbrautir.

 

> Bloggvefur Guðmundar Gunnarssonar

> Eyjan.is

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31