Tenglar

8. desember 2011 |

„Enn á að tefja möguleikana á vegabótum“

Skjaldarmerki Vesturbyggðar.
Skjaldarmerki Vesturbyggðar.

Bæjarstjórn Vesturbyggðar mótmælir harðlega aðförinni að samfélaginu á sunnanverðum Vestfjörðum með umsögn Skipulagsstofnunar um vegagerð á Vestfjarðavegi 60 frá Eiði í Vattarfirði að Þverá í Kjálkafirði. Með umsögn sinni leggst Skipulagsstofnun eindregið gegn vegagerð á svæðinu. Skipulagsstofnun er  í raun að leggja til gamaldags vegagerð sem er óöruggari og alls ekki í samræmi við þær kröfur sem gerðar eru til nútíma vegaframkvæmda.

 

Þannig hefst bókun sem samþykkt var samhljóða á fundi bæjarstjórnar Vesturbyggðar í gær. Síðan segir í bókuninni:

 

Úrskurður Skipulagsstofnunar ber vott um fyrirfram ákveðnar skoðanir á vegagerð á Vestfjörðum og fullkomna vanþekkingu á staðháttum, samfélagi og lífríki á þessu svæði. Reynslan hefur t.d. sýnt fram á að arnarvarp spillist ekki vegna umferðar bíla heldur vegna annarra ástæðna.

 

Augljóst er á áliti Skipulagsstofnunar að enn á að tefja möguleikana á vegabótum um Vestfjarðaveg nr. 60.

 

Bæjarstjórn Vesturbyggðar harmar ennfremur að Dýrafjarðargöng séu ekki sett á dagskrá fyrr en árið 2018-20. Það er sorglegt að sjá að samgöngubætur á Vestfjörðum séu svo aftarlega í forgangsröðuninni og raun ber vitni og öðrum verkefnum sem síðar voru áætluð sé skotið fram fyrir án fullnægjandi rökstuðnings og fjármögnunar.

 

Bæjarstjórn Vesturbyggðar hvetur Vegagerðina til dáða í verkefnum sínum, þau eru mikilvæg fyrir land og þjóð.

 

Bæjarstjórn fól bæjarstjóra að senda ályktun þessa til innanríkisráðherra, þingmanna kjördæmisins og annarra sem málið við kemur.

 

Sjá einnig:

Reykhólavefurinn 07.12.2011  Vegagerðin ætlar samt að halda sínu striki

Reykhólavefurinn 07.12.2011  Skipulagsstofnun þversum gegn nýjum vegi

 

Vefur Vesturbyggðar

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31