30. mars 2017 | Sveinn Ragnarsson
Enn einn startpakkinn afhentur
Þær Áslaug Guttormsdóttir og Sandra Rún Björnsdóttir afhentu nú fyrir skömmu enn einn startpakkann, sem sveitarstjórn hefur fært nýfæddum íbúum hreppsins síðustu ár.
Það voru Hrefna Jónsdóttir og Bergþór Olivert Thorstensen sem eignuðust frumburð sinn, myndar stúlku þann 14. febrúar. Eru þeim færðar hamingjuóskir.
Og fyrir þá sem vilja vita deili á fólki, þá er Hrefna dóttir Jóns Árna Sigurðssonar og Steinunnar Ólafíu Rasmus á Reykhólum, og Bergþór er úr Kópavoginum, foreldrar hans eru Guðbjörg Grétarsdóttir og Örn Thorstensen
Einar Örn Thorlacius fyrrv. sveitarstjóri Reykhólahrepps, rijudagur 04 aprl kl: 15:04
Til hamingju!