Tenglar

12. júlí 2008 |

Enn verður bið á háhraðatengingum í dreifbýli

Til stóð að opna tilboð í háhraðatengingar fyrir 1.500 sveitabæi og fyrirtæki í dreifbýli núna í júlílok. Nú hefur því verið frestað fram í september. Verða því enn tafir á að þetta mikilvæga byggðamál og verkefni Fjarskiptasjóðs komi til framkvæmda, en samkvæmt Fjarskiptaáætlun 2005-2010 áttu allir landsmenn að njóta háhraðatengingar í árslok 2007 eða um síðustu áramót. Verkefnið á að tryggja íbúum í dreifbýli háhraðanettengingar og tilheyrandi þjónustu allt til ársins 2014 hið minnsta.

 

Frá þessu er greint hér á vefnum strandir.is.

 

Um er að ræða 1.500 staði samkvæmt ræðu Kristjáns Möller samgönguráðherra á Alþingi snemma í febrúar. Hægt er að nálgast yfirlit yfir þessa staði á heimasíðu Ríkiskaupa. Áður hafði komið fram á heimasíðu Fjarskiptasjóðs og í auglýsingu frá honum, að listi með upptalningu og staðsetningu á öllum þeim fasteignum sem þjónustan muni ná til yrði birt opinberlega fyrir útboðið. Ritstjóra vefjarins strandir.is er ekki kunnugt um að það hafi verið gert, en þetta var hugsað til að þess að „íbúar, fjarskiptafyrirtæki og hagsmunaaðilar gætu gert athugasemdir". Ekki er vitað hvort of seint er að gera athugasemdir nú, en í fljótu bragði sá ritstjóri vefjarins strandir.is nokkra staði í Strandabyggð sem vantar á listann.

 

Verkefnið felur í sér stuðning við uppbyggingu á háhraðanettengingum á lögheimilum í sveit með heilsársbúsetu og fyrirtækjum með starfsemi allt árið, þar sem háhraðanettengingar eru hvorki í boði né fyrirhugaðar á markaðslegum forsendum. Samkvæmt ræðu núverandi samgönguráðherra Kristjáns Möllers á Alþingi í febrúar er gert ráð fyrir að minnsta kosti 2 mb lágmarkshraða.

 

Eftirtaldir staðir í Reykhólahreppi eru á umræddum lista: 

  • Árbær
  • Bakki
  • Bjarkalundur
  • Borg
  • Bólstaður
  • Djúpidalur
  • Flatey 1 (Læknishús)
  • Flatey 2
  • Fremri-Gufudalur
  • Garpsdalur
  • Gautsdalur
  • Gillastaðir
  • Glaðheimar
  • Gróustaðir (2 staðir)
  • Gröf
  • Gufudalur
  • Hafrafell
  • Hamarland
  • Hofsstaðir
  • Hólar
  • Hríshóll
  • Ingunnarstaðir
  • Kambur
  • Kinnarstaðir
  • Klukkufell
  • Króksfjarðarnes (3 staðir)
  • Litla-Brekka
  • Miðjanes
  • Móskógar
  • Múli Kollafirði
  • Mýrartunga 1
  • Mýrartunga 2
  • Seljanes
  • Skálanes
  • Staður II
  • Svarfhóll
  • Tindar

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31