Er enn meira en áratugur í tengingu svæða allt árið?
Gerð svokallaðra Dýrafjarðarganga, sem leysa eiga af hólmi veginn illræmda yfir Hrafnseyrarheiði milli Dýrafjarðar og Arnarfjarðar, verður frestað fram til 2019-2022, samkvæmt drögum að nýrri samgönguáætlun sem samþykkt hefur verið í ríkisstjórn. Þrjátíu ár eru liðin síðan fyrst var farið að athuga með gerð jarðganga milli Dýrafjarðar og Arnarfjarðar enda þótti á þeim tíma orðin brýn nauðsyn á þeirri framkvæmd.
Vegurinn yfir Hrafnseyrarheiði, einhver alversti fjallvegur landsins, sem tengir norður- og suðursvæði Vestfjarða, er að jafnaði lokaður nokkra mánuði á hverjum vetri. Ógerlegt er að halda honum opnum, meðal annars vegna stöðugrar snjóflóðahættu og annarra aðstæðna. Vegurinn sem lagður var í lok seinna stríðs er mjór og krókóttur, með vinkilbeygjum í miklum brattta og sneiðingum. Hæst liggur hann í 552 metra hæð.
visir.is 15. október 2011 Ófært á Hrafnseyrarheiði vegna snjóflóða