Tenglar

27. mars 2014 | vefstjori@reykholar.is

Erfitt að gera upp á milli keppendanna

Baldur Sigurðsson og síðan Stefán, Aron, Andri, Daníel, Kári og Brianna.
Baldur Sigurðsson og síðan Stefán, Aron, Andri, Daníel, Kári og Brianna.
1 af 5

Kári Ingvarsson frá Finnbogastaðaskóla í Árneshreppi sigraði í Stóru upplestrarkeppninni á Reykhólum í dag, Aron Viðar Kristjánsson frá Reykhólaskóla varð í öðru sæti og Daníel Freyr Newton frá Grunnskólanum á Hólmavík í þriðja sæti. Brianna Jewel Johnson frá Grunnskólanum á Hólmavík fékk aukaverðlaun. Aðrir þátttakendur voru Andri Smári Hilmarsson frá Grunnskólanum á Drangsnesi og Stefán Snær Ragnarsson frá Grunnskólanum á Hólmavík.

 

Til aðstoðar voru Karen Ösp Haraldsdóttir frá Grunnskólanum á Drangsnesi, sem sigraði í keppninni í fyrra, og Aðalbjörg Egilsdóttir frá Reykhólaskóla, sem varð þá í öðru sæti. Áður en keppnin hófst ávarpaði Ásta Sjöfn Kristjánsdóttir skólastjóri Reykhólaskóla mannskapinn.

 

Dómarar voru Baldur Sigurðsson frá Röddum, Guðjón Dalkvist á Reykhólum og sr. Elína Hrund Kristjánsdóttir sóknarprestur á Reykhólum. „Keppnin var mjög jöfn og erfitt að gera upp á milli keppenda,“ segir Guðjón.

 

Í hléi var sýnt auglýsingamyndband frá nemendum Reykhólaskóla. Sigurvegarinn frá því í fyrra, Karen Ösp Haraldsdóttir, flutti ljóð, og síðan var atriði frá Grunnskólanum á Hólmavík, þar sem Sólrún Ósk Pálsdóttir, nemandi í 8. bekk, lék lagið You can read all about it í eigin útsetningu.

 

Eftir keppnina var boðið upp á indælis kjötsúpu að hætti matráðsins í Reykhólaskóla.

 

Allir þátttakendurnir fengu bókargjöf frá Félagi íslenskra bókaútgefenda, peningagjöf kom frá Íslandsbanka til þeirra sem lentu í fyrstu þremur sætunum og Mjólkursamsalan gaf öllum kókómjólk.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31