2. maí 2012 |
Erindi um líknardeildir og krabbameinsmeðferð
Sigrún Lillý á Ráðgjafamiðstöð Krabbameinsfélags Íslands flytur erindi um líknardeildir vegna krabbameins og um krabbameinsmeðferð, á aðalfundi Krabbameinsfélags Breiðfirðinga, sem haldinn verður í Vogalandi í Króksfjarðarnesi kl. 17 í dag, miðvikudag. Auk venjulegra aðalfundarstarfa verða einnig lagabreytingar á dagskrá og kosning fulltrúa á aðalfund Krabbameinsfélags Íslands.
Stjórn Krabbameinsfélags Breiðfirðinga hvetur fólk eindregið til að sækja fundinn í dag og styrkja starfið. Kaffiveitingar í boði félagsins.