Tenglar

15. september 2010 |

Erla Björk ráðin skrifstofustjóri Reykhólahrepps

Erla Björk Jónsdóttir.
Erla Björk Jónsdóttir.
Erla Björk Jónsdóttir, Ásaheimum í Króksfjarðarnesi, hefur verið ráðin skrifstofustjóri Reykhólahrepps í stað Eyglóar Kristjánsdóttur sem fyrir skömmu var ráðin sveitarstjóri Skaftárhrepps. Erla Björk er uppalin á Drangsnesi í Strandasýslu en hefur einnig búið í Reykjavík, á Bifröst og Akranesi. Hún fluttist fyrst í Reykhólahrepp árið 2001 og bjó hér uns hún fór í nám á Bifröst árið 2004. Fluttist svo aftur í Reykhólahrepp í desember á liðnum vetri. Á fyrra skeiði sínu í Reykhólahreppi vann Erla Björk sem sölufulltrúi í Þörungaverksmiðjunni og annaðist reikningagerð, launaútreikninga og almenna bókhaldsvinnu.

 

Árið 2007 útskrifaðist Erla Björk sem viðskiptafræðingur frá Háskólanum á Bifröst. Helsta starfsreynsla hennar er á sviði bókhalds. Í byrjun þessa árs hóf hún rekstur bókhaldsþjónustu fyrir bændur og lítil fyrirtæki og mun halda áfram með hana samhliða skrifstofustjórastarfinu hjá Reykhólahreppi.

 

Erla Björk er gift Hjalta Helgasyni. Börn hennar eru Aron Viðar Kristjánsson (2001) og Vigdís Lilja Hjaltadóttir (2009). Hjalti á að auki tvo syni, Arnþór Snæ (1996) og Marinó Hrannar (1998).

 

Athugasemdir

Inga Smára, mivikudagur 15 september kl: 21:43

Til hamingju með starfið, og gangi þér vel .

Eyvindur, fimmtudagur 16 september kl: 07:01

Til hamingju

Einar Örn Thorlacius fyrrv. sveitarstjóri Reykhólahr., fimmtudagur 16 september kl: 08:15

Já, til hamingju með starfið Erla Björk. Það er gott að vinna á hreppnum!

Arnheiður, fimmtudagur 16 september kl: 18:25

Flott hjá þér frumkvöðlafrauka :)
Til hamingju með nýja starfið og farnist þér vel.

Pálína Pálsdóttir, fstudagur 17 september kl: 08:13

Til hamingju með stöðuna Erla og gangi þér vel.

Þorgeir Samúelsson, laugardagur 25 september kl: 13:29

Til hamingju með starfið...frábært fyrir okkur í Reykhólahreppi að fá fólk með menntun og mettnað til krefjandi starfa.

Kv.
Þorgeir

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31