13. maí 2011 |
Evróvisjón og tilboð á pítsum og hamborgurum
Úrslitalotan í Evróvisjón annað kvöld verður sýnd á 42" skjá í betri stofunni í Bjarkalundi, þar sem hægt er að velja um hægindastóla og sófa. Hátíðartilboð verður á pítsum og hamborgurum í tilefni dagsins og geta gestir notið veitinganna á staðnum eða sótt og farið með heim. Fyrir þá sem það gera er mjög æskilegt að hringja á undan og panta til að komast hjá bið. Tilboðin eru þessi:
16" pítsa með þremur áleggstegundum kostar kr. 1.950. Hamborgari og franskar kosta kr. 1.350. Hægt er að panta í síma 434 7762 eða 894 1295.
Björk Stefánsdóttir, fstudagur 13 ma kl: 14:03
Frábært, ég nýti mér það, sæki mér pizzu;-)
ÁFRAM ÍSLAND ;-)