Excel í fjarkennslu
Ertu strand í Excel? Við bjóðum námskeið sem ætti að henta öllum þar sem það er fjarkennt, skoðaðu málið, segir í pósti frá Símennt á Vesturlandi. Markmiðið er að nemendur bæti við grunnþekkingu sína á Excel-töflureikni. Nemendur öðlast færni og þekkingu sem nýtist þeim í einkalífi og starfi.
Kennsluefni
Kennari leggur til á rafrænu formi kennsluhefti ásamt öðru efni og vísar á góða vefi.
Kennslufyrirkomulag
Upptökur og annað efni verður sett tvisvar í viku inn á kennsluvef Lærimeistarans.
Kennslustundir í gegnum Skype verða vikulega.
Nemendur sækja verkefni og gögn á kennsluvef Lærimeistarans.
Fjarkennt í gegnum Skype og hefst kennsla í mars þegar næg þátttaka næst.
Leiðbeinandi
Jón Freyr Jóhannsson, kennari við Háskólann á Bifröst, tölvunarfræðingur með meistaragráðu í viðskiptafræði.
Verð
Kr. 36.900.
Skráning í síma 437 2390 eða í netpósti: skraning@simenntun.is.
Flest stéttarfélög niðurgreiða námskeið, kannaðu rétt þinn. Styrkur getur numið allt að 75%, en hafa ber í huga að þetta er þó misjafnt eftir stéttarfélögum.
Símenntunarmiðstöðin á Vesturlandi