Tenglar

9. júlí 2010 |

Eygló ráðin sveitarstjóri Skaftárhrepps

Eygló Kristjánsdóttir.
Eygló Kristjánsdóttir.
Eygló Kristjánsdóttir á Reykhólum hefur verið ráðin sveitarstjóri Skaftárhrepps og tekur við starfinu um miðjan næsta mánuð. Hún hefur gegnt starfi skrifstofustjóra Reykhólahrepps í átta ár eða frá því að hún fluttist að Reykhólum sumarið 2002. Eygló er viðskiptafræðingur að mennt en því prófi lauk hún fyrir tveimur árum eftir fjögur ár í fjarnámi. Sambýlismaður hennar er Bjarki Þór Magnússon smiður frá Seljanesi í Reykhólasveit og börn þeirra eru þrjú. Þau Bjarki Þór bjuggu í Reykjavík í rúman áratug áður en þau komu vestur og settust að á Reykhólum.

 

Skaftárhreppur er eitt af allra víðlendustu sveitarfélögum landsins og nær yfir alla Vestur-Skaftafellssýslu að Mýrdalshreppi undanskildum. Hins vegar er hann strjálbýll og var íbúafjöldinn 1. desember síðastliðinn 450 manns. Helsti atvinnuvegur er landbúnaður en ferðaþjónusta er í örum vexti.

 

Skaftárhreppur varð til (eins og Reykhólahreppur fáum árum fyrr) við sameiningu fimm hreppa árið 1990. Stjórnsýslumiðstöð Skaftárhrepps er Kirkjubæjarklaustur og þangað mun Eygló senn flytjast ásamt fjölskyldu sinni.

 

Þess má geta, að öll stækkun Vatnajökulsþjóðgarðs er innan marka Skaftárhrepps.

 

Athugasemdir

Björg Karlsdóttir, mnudagur 12 jl kl: 23:09

Þótt ég óski Eygló innilega til hamingju með starfið, vildi ég óska þess að hún væri ekki að fara.
Eygló mér finnst þetta ekki góðar fréttir fyrir okkar samfélag hér og það fyllir ekki hver sem er skarðið sem þú skilur eftir og þið öll.
Ég óska ykkur alls hins besta á nýjum stað og veit að þú tekur til hendinni hvar sem þú ert. Bestu kveðjur, saknaðarkveðjur.

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31