Tenglar

13. mars 2012 |

„FERГ í héraðinu í sumar: Óskað eftir hugmyndum

Sýningarverkefnið Dalir og Hólar efnir til sýningar á svæðinu Dalabyggð-Reykhólahreppur núna í sumar. Myndlistarmenn munu vinna út frá náttúru og menningu sveitarfélaganna tveggja, sem mynda umgjörð um sýninguna. Prentuð verður sýningarskrá sem jafnframt er leiðsögukort. Markmið verkefnisins er að auka og efla menningartengda ferðamennsku á svæðinu.

 

Viðfangsefni sýningarinnar, sem opnuð verður 30. júní, er að þessu sinni hugtakið FERÐ.

 

Í samráði við landeigendur og húsráðendur munu listamennirnir velja sér sýningarstað eða svæði til að vinna með. Sýningarstaðirnir eða svæðin geta verið af ýmsum toga; tóm hús, húsarústir, hús í byggð, eyðibýli eða tiltekið svæði í Reykhólahreppi eða Dalabyggð - eða annað.

 

Hér með er kallað eftir hugmyndum og uppástungum um áhugaverða staði, sem gætu verið sýningarrými fyrir Dali og Hóla 2012.

 

Hugmyndum óskast komið á framfæri við sýningarstjóra:

       Sólveig Aðalsteinsdóttir - 692 1194 - soladal@internet.is

       Þóra Sigurðardóttir - 896 1930 - thora@this.is

 

Listamennirnir munu velja sér staði og sýna verk sín á fjórum til fimm stöðum. Auk þess munu þeir allir setja upp verk á annarri hæð í gamla skólahúsinu í Ólafsdal.

 

Að þessu sinni hefur verkefnið boðið erlendum listamanni þátttöku, Cai Ulrich von Platen. Hann er danskur myndlistarmaður búsettur í Kaupmannahöfn og hefur hlotið margs konar opinberar viðurkenningar fyrir list sína, m.a. frá Statens Kunstfond (Listasjóði ríkisins).

 

Að auki er fjórum íslenskum listamönnum boðin þátttaka í sýningunni en þar af er einn búsettur erlendis. Þetta eru þau Ólafur Sveinn Gíslason, Guðrún Hrönn Ragnarsdóttir (búsett í Finnlandi), Inga Þórey Jóhannsdóttir og Einar Garibaldi Eiríksson.

 

Öll eru þau reyndir myndlistarmenn sem tekið hafa þátt í fjölda sýninga hérlendis og erlendis og hafa verk þeirra gjarnan snúist um ferðir og staði.

 

Menningarráð Vesturlands styrkir verkefnið.

 

► 07.08.2009  Sýningin Dalir - Hólar - handverk opnuð á sunnudag

► 08.08.2008  „Einhver áhugaverðasta myndlistaruppákoma sumarsins“

► 17.06.2008  Átta tengdar sýningar á átta stöðum - Hólar og Dalir

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31