Tenglar

6. mars 2012 |

Fasteignagjöld: Aðeins fyrsti greiðsluseðill sendur út

Frá Reykhólum. Ljósm. Árni Geirsson.
Frá Reykhólum. Ljósm. Árni Geirsson.

Álagningarseðlar fasteignagjalda í Reykhólahreppi berast greiðendum þessa dagana. Þeir verða einnig aðgengilegir á vefnum www.island.is síðar í mánuðinum. Álagningarákvæðin eru ekki send með seðlinum eins og venja er, heldur eru þau aðgengileg hér á vef Reykhólahrepps. Þau má finna með því að smella á borða sem verður um sinn fyrir neðan efstu frétt á forsíðunni og líka með því að smella á Álagning gjalda árið 2012 í reitnum Gjaldskrár allra neðst á síðunni.

 

Allar nánari upplýsingar um álagningu fasteignagjalda eru veittar á skrifstofu Reykhólahrepps í síma 434 7880. Einnig má senda fyrirspurnir á netfangið reykholar@reykholar.is.

 

Greiðsluseðill fyrir fyrsta gjalddagann er eini greiðsluseðillinn sem sendur verður út. Greiðsluseðlar fyrir hina gjalddagana verða á rafrænu formi og birtast í netbanka greiðanda. Greiðsluseðlar verða áfram sendir út til þeirra sem eru 67 ára og eldri. Ef óskað er eftir því að fá greiðsluseðil sendan heim er sjálfsagt að verða við þeirri beiðni.

  • Heildargjöld lægri en 10.000 kr. innheimtast með einum gjalddaga á ári, þann 10. mars.
  • Heildargjöld milli 10.000 kr og 20.000 kr. innheimtast á tveimur gjalddögum, 10. mars og 10. apríl.
  • Heildargjöld umfram 20.000 kr innheimtast á fjórum gjalddögum, 10. mars, 10. apríl, 10. maí og 10. júní.

Eindagar eru 30 dögum eftir gjalddaga.

 

Afsláttur tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega vegna fasteignaskatts skv. reglum sveitarstjórnar hefur verið færður til lækkunar.

 

Hægt er að biðja um endurálagningu með rökstuddum hætti. Frestur til þess er einn mánuður. Kæra má úrskurð sveitarfélagsins til innanríkisráðuneytisins innan þriggja mánaða.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31