4. mars 2013 | vefstjori@reykholar.is
Fatamarkaður frestast vegna veðurs og færðar
Rósin, tískuverslun á Akureyri, auglýsti fatamarkað í Búðardal og á Hólmavík þessa dagana í dreifibréfi sem meðal annars var borið út í Reykhólahreppi. „Það er ófært að komast til ykkar frá Akureyri og ég er búin að fá tímunum breytt og verð á Hólmavík á föstudag, 8. mars, og í Búðardal á laugardag, 9. mars,“ segir Stefanía Sigurjónsdóttir hjá Rósinni. Hún verður með markaðinn á báðum stöðum frá kl. 13 til 17.